Grandstream WP820 er þráðlaus Wi-Fi IP sími sem er hannaður fyrir fyrirtæki þar sem starfsfólk þarf að vera á ferðinni án þess að missa tengingu. Hann tengist beint við fyrirtækjanetið í gegnum tvíbanda Wi-Fi og styður roaming milli aðgangspunkta, sem tryggir áreiðanleg símtöl þegar farið er um skrifstofur, lagera, verslanir, hótel eða heilbrigðisstofnanir.
Síminn skilar framúrskarandi hljóðgæðum með HD Voice, tveimur hljóðnemum, bergmálsdeyfingu (AEC) og Noise Shield tækni sem dregur úr bakgrunnshávaða. Innbyggt Bluetooth 4.2 gerir auðvelt að para þráðlaus headset eða samstilla farsíma fyrir aukinn sveigjanleika.
WP820 styður tvo SIP reikninga og tvær símalínur og býður upp á fjölbreytta símaeiginleika eins og símaflutning, símtalsframsendingu og þriggja aðila símafund. Android 7.0 stýrikerfið gerir jafnframt mögulegt að keyra sérsniðin Android forrit sem eru hönnuð fyrir tækið.
1500 mAh rafhlaðan veitir allt að 7,5 klukkustunda taltíma og allt að 150 klukkustunda biðtíma. Síminn er einnig búinn sérstillanlegum Push-to-Talk hnappi sem hægt er að nota fyrir talstöðvarvirkni, neyðarkall eða aðrar sérlausnir fyrirtækja.