3CX + Odoo
Byrjaðu á símtalinu. Restin kemur á eftir.
3CX símkerfið tengt við Odoo — sölumegin, þjónustumegin eða hvoru tveggja. Þegar síminn hringir opnast spjald viðskiptavinarins og allt samhengið er komið. Þetta er byrjunin, ekki heildarpakkinn.
Sjá byrjunarpakkana Bóka 20 mínútna spjallStarfsmaðurinn þarf ekki að spyrja hver þú ert, hvað þú keyptir eða hver talaði við þig síðast. Það stendur á skjánum þegar hann tekur upp tólið.
Byrjunin
Hverjir svara í símann hjá ykkur?
Símkerfið er alltaf undir. Ofan á það kemur annaðhvort söluhliðin, þjónustuhliðin eða báðar — eftir því hverjir eru að svara í símann hjá ykkur.
Söluhliðin
3CX + CRM
Fyrir fyrirtæki þar sem síminn er sölutæki. Fyrirspurnin sem kemur inn verður að sölutækifæri í stað þess að enda í minnisblokk.
- Sölutækifæri stofnað beint úr símtalinu
- Söluþrep, eftirfylgni og áminningar
- Tilboð send úr sama spjaldi
Þjónustuhliðin
3CX + Þjónustuborð
Fyrir þá sem taka við bilunum, fyrirspurnum og kvörtunum. Hvert símtal fær númer, ábyrgðarmann og stöðu.
- Þjónustubeiðni stofnuð úr símtalinu
- Staða og ábyrgðarmaður á hverju máli
- Svartími og álag mælt
Báðar hliðar — algengast
3CX + hvoru tveggja
Sami viðskiptavinur hringir stundum til að kaupa og stundum af því að eitthvað virkar ekki. Hér situr það á sama spjaldi.
- Sala og þjónusta á einu viðskiptavinaspjaldi
- Þjónustusaga sýnileg í sölusamtali
- Ein skráning, ekki tvær
Það er hægt að byrja á sölu-eða þjónustuhliðinni og bæta hinu við síðar. Ekkert þarf að setja upp aftur og engin gögn eru flutt á milli — þetta er sama kerfið.
Hvað gerist þegar síminn hringir.
01
Símtalið kemur inn
3CX þekkir númerið úr Odoo og spjald viðskiptavinarins opnast sjálfkrafa á skjá þess sem svarar.
02
Samhengið er komið
Fyrri símtöl, opin mál og það sem hefur verið sent — á sömu síðu. Engin leit í þremur kerfum á meðan viðskiptavinurinn bíður.
03
Skráningin gerist sjálf
Símtalið skráist á viðskiptavininn. Úr spjaldinu er stofnuð þjónustubeiðni, sölutækifæri eða hvort tveggja — eftir því hvað þið völduð.
Viðskiptavinaspjaldið
Það sem starfsmaðurinn sér.
Enginn þarf að biðja um kennitölu til að finna málið. Fyrsta hálfa mínútan af símtalinu fer í viðskiptavininn en ekki í leitina.
Vöxturinn
Og svo byggirðu ofan á.
Odoo er eitt kerfi með mörgum einingum, ekki mörg kerfi sem tala saman. Þegar byrjunin er kominnt bætist næsta eining við inni í sama umhverfi — sömu notendur, sömu viðskiptavinir, sama innskráning.
Fyrst síminn og samskiptin
3CX og CRM, þjónustuborð eða hvoru tveggja. Þetta er byrjunin sem allt snýst um.
Svo peningarnir
Tilboð verða að reikningum og allt bókast í bókhaldiið. Íslensk staðfærsla, bankatenging og rafrænir reikningar fylgja.
Þar á eftir vinnan sjálf
Verkefni, tímaskráning, vettvangsþjónusta, lager eða vefverslun, eða það sem á við ykkar rekstur.
- Sala og tilboð
- Bókhald
- Reikningar og kröfur
- Verkefnastýring
- Tímaskráning
- Vettvangsþjónusta
- Lager og innkaup
- Vefur og netverslun
- Mannauður og laun
- Markaðsmál
Yfir 80 einingar eru í boði. Sjá allar einingar.
Verð
Reiknaðu byrjunina.
Símkerfið, leyfin, hýsingin og okkar áskrift í einni mánaðartölu. Leyfi og hýsing fara í gegnum Odoo, við rukkum fyrir okkar hluta.
Allir sem skrá sig inn í kerfið.
Hversu margir tala í einu, ekki hversu margir eru á launaskrá. Tuttugu manna fyrirtæki kemst oft af með átta.
3CX Odoo-leyfi Hýsing Boðleið
Hlutur Boðleiðar er 32 prósent af heildinni. Hitt er símkerfi, leyfi og hýsing á kostnaðarverði. Árgreiðsla áskriftar 299.000 kr, tveir mánuðir fríir.
* Mánaðargjöld. Uppsetning, tenging við 3CX og númeraflutningur geta bæst við sem stofnkostnaður — það ræðst af því hvað þið eruð með fyrir. Tölurnar eru til viðmiðunar og endanlegt tilboð gerum við þegar þarfirnar liggja fyrir.
Miðað við 40 GB af gögnum, venjulega skrifstofunotkun, árgreiðslu til Odoo á listaverði og gengið 145 kr/EUR. Allar tölur án virðisaukaskatts.
Grunnur dugar fyrir byrjunina. Símkerfi, CRM og þjónustuborð kalla hvorki á bankatengingu né rafræna reikninga — það kemur þegar bókhaldið bætist við, og þá færist áskriftin í Rekstur.
Það kostar ekki meira í leyfum að byrja á báðum hliðum. Odoo-leyfið er verðlagt á notanda, ekki á einingu. Sjá alla verðskrána og reikna með fleiri breytum.
Smáa letrið, stórt.
CRM-tengingin krefst 3CX PRO
Grunnútgáfan af 3CX styður ekki CRM-tengingu. Verðsamanburður við ódýrustu símkerfin er því ekki sambærilegur.
Greitt fyrir samtímanotendur
3CX er verðlagt eftir því hversu margir tala í einu, ekki eftir starfsmannafjölda. Tuttugu manna fyrirtæki kemst oft af með átta línur.
Að bæta við kostar ekki nýtt kerfi
Stærra leyfi eða AI kallar bara á uppfærslu á leyfi. Engin ný uppsetning, enginn gagnaflutningur og ekki þarf að halda utan um tvo viðskiptavinalistar.
Uppfærslur innifaldar
Ný útgáfa af Odoo og 3CX kemur einu sinni á ári. Við uppfærum umhverfið.
Tuttugu mínútur duga.
Við förum yfir hverjir svara í símann hjá ykkur, hvort byrjunin á að vera sölumegin, þjónustumegin eða bæði, og hvað uppsetning kostar.
Bóka fund Skoða Odoo verðsíðuna