LinkRunner AT 3000 er næstu kynslóðar netmælir hannaður fyrir tæknimenn netkerfa. Þeir sem þurfa hraðvirkan og skilvirkan netmæli til að staðfesta netlagnir, tengingar, netbúnað og bilanagreina kopar/ljósleiðara netkerfi. Mæla lengd netlagna, lengd í bilun, hvert par fyrir sig, víxlun, tengivillur, port blink.Hægt er að framkvæma ítarlega greiningu á netkerfum með AutoTest, CableTest og SwitchTest, staðfesta hraða nettengingar fyrir 10mb/100mb/1gíg/2,5gíg/5gíg/10gíg, switch test, Ping test og Vlan monitoring og margt fleira.Allar mælingar á netlögnum og netkerfum eru fyrir 10mb/100mb/1gíg. LinkRunner AT 3000 getur einnig mælt PoE/+/++ að 90W, sýnir hvaða pör eru straumhafandi. Mæla styrk ljósleiðaramerkis -dBm og upplýsingar um ljósbreytuna SFP. Hægt er að útbúa og senda skýrslur með Link-Live skýþjónustu NetAlly.Link-Live™ fríttGagnvirkt vefviðmót fyrir úrvinnslu gagna, skýrslugerð og samskiptavettvangur fyrir tæknifólk.Link-Live er öflugt tól fyrir notendur netmæla NetAlly. Skýrslugerð og úrvinnslu gagna sem eru send sjálfvirk úr netmælinum. Sjá allar skýrslur og gögn í einu viðmóti. Samskiptavettvangur fyrir tæknimenn til að deila gögnum og skýrslum. Gagnvirkt viðmót, WiFi mælaborð, kortlagning netkerfa og hægt að síur til að sjá einfalda eða ítarlegri mynd af netkerfi. Í Link-Live getur notandinn kortlagt víruð og þráðlaus netkerfi með gögnum úr mælingum frá EtherScope nXG, LinkRunner AT4000, LinkRunner 10G og CyberScope. Hægt er að setja inn grunnmyndir af byggingum/hæðum og útbúa hitakort "heatmap" fyrir WiFi með aðstoð AirMapper Site Survey App í CyberScope, EtherScope nXG
Breyttir opnunartímar verða dagana 24.desember og 31.desember.
24.desemberLokað31.desemberLokað
Almennur opnunartími:Mánudaga - fimmtudaga:8:30 - 16:30Föstudaga:8:30 - 15:00