Yealink BH71 Workstation Pro er fullbúin samskiptalausn fyrir þá sem eru mikið í símtölum og vilja tengja saman tölvu, farsíma og borðsíma í einni vinnustöð. Lausnin samanstendur af einstaklega léttu BH71 Bluetooth höfuðtóli, BHB710 snjallri vinnustöð, BT51 Bluetooth USB-millistykki og hleðsluhulstri.
BH71 höfuðtólið vegur aðeins 18 grömm og notar 4 hljóðnema Beamforming Noise Cancellation til að draga úr bakgrunnshljóði og tryggja skýra rödd í símtölum.
BHB710 vinnustöðin gerir BH71 Workstation Pro að mun meira en hefðbundnu Bluetooth höfuðtóli. Hún býður upp á snertiskjá, innbyggðan hátalara og hljóðnema, USB-hub og Qi þráðlausa hleðslu fyrir samhæfa snjallsíma.