Hoppa á efni
Boðleið
  • Lausnir og þjónusta

    Fjarskipti


    3CXTeamsTotalviewSMS gáttirFarsími og internet

    Viðskiptahugbúnaður


    OdooOdoo áskriftirOdoo + 3CXMicrosoft 365

    Netöryggi


    N-ableNetAlly

    Þjónusta & ráðgjöf


    Tækniþjónusta HugbúnaðarþjónustaBókhaldsþjónustaVerðskrá þjónustu og ráðgjafar

    Vörur


    Símtæki Fjarfundarbúnaður Heyrnartól Netbúnaður
    Afgreiðslulausnir
  • Um okkur

    Um okkur


    Fyrirtækið og starfsfólkVottanir og viðurkenningar VörumerkinEndursöluaðilarHvað er að frétta?
    Follow us
  • Störf
  • Fjaraðstoð
  • Vefverslun
  • Taka spjallið
  • 0
  • Innskrá
Boðleið
  • 0
    • Lausnir og þjónusta
    • Um okkur
    • Störf
    • Fjaraðstoð
    • Vefverslun
    • Taka spjallið
  • Innskrá
 Allar atvinnuauglýsingar

Viðskiptastjóri hugbúnaðarlausna

Kópavogur, Ísland

Sækja um

Boðleið leitar að viðskiptastjóra hugbúnaðarlausna til að leiða Odoo verkefni viðskiptavina frá þarfagreiningu að afhendingu. Við leitum að einstaklingi með reynslu af verkefna- og teymisstjórnun, góðan tæknilegan skilning og hæfni til að vinna náið með viðskiptavinum og þróunaraðilum.

Hugbúnaðardeildin sinnir innleiðingu, aðlögun og þróun lausna í Odoo fyrir viðskiptavini. Þú heldur utan um samstarf við viðskiptavini, leiðir og styður þróunarteymið í daglegri vinnu og sinnir jafnframt uppsetningu og stillingum í Odoo, prófunum og fræðslu viðskiptavina.

Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra Boðleiðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipuleggja og stýra innleiðingum, þróunarverkefnum og umbótum fyrir viðskiptavini.
  • Greina þarfir og verkferla viðskiptavina og móta skýrar verkefnalýsingar í samstarfi við þróunaraðila.
  • Leiða og styðja þróunarteymið, forgangsraða verkefnum og fylgja framvindu þeirra eftir.
  • Gera verkefna- og tímaáætlanir og fylgjast með umfangi, kostnaði, gæðum og framvindu verkefna.
  • Sinna uppsetningu og stillingum í Odoo og prófa lausnir fyrir afhendingu.
  • Veita viðskiptavinum ráðgjöf, fræðslu og stuðning við innleiðingu nýs verklags.
  • Halda utan um samskipti við viðskiptavini, samstarfsaðila og birgja.
  • Tryggja góða skjölun og afhendingu lausna.
  • Koma að tilboðsgerð og þróun þjónustuframboðs.

Menntun, hæfni og reynsla

  • Menntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði viðskiptafræði, lögfræði eða tölvunarfræði.
  • Reynsla af verkefna- og teymisstjórnun eða sambærilegu starfi, til dæmis við kerfisinnleiðingar, hugbúnaðarþróun eða tækniráðgjöf.
  • Góður tæknilegur skilningur og geta til að tileinka sér ný kerfi og lausnir.
  • Hæfni til að greina viðfangsefni, afmarka verkefni og móta skýrar verkefnalýsingar.
  • Hæfni til að útskýra tæknileg viðfangsefni fyrir viðskiptavinum.
  • Góð samskipta- og leiðtogahæfni.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og eftirfylgni.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Reynsla af Odoo eða öðrum viðskiptakerfum er kostur.
  • Reynsla af fyrirtækjarekstri, til dæmis veitinga- eða verslunarrekstri, er kostur.

Við bjóðum upp á

  • Sveigjanlegan vinnutíma.
  • Hádegismat á vinnustað.
  • Fjölbreytt verkefni og náið samstarf við viðskiptavini.
  • Tækifæri til að hafa áhrif á þróun þjónustu og verklags.

Umsókn

Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember 2026. Umsókn skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf þar sem fram kemur hvernig reynsla og hæfni nýtist í starfi.

Nánari upplýsingar fást með því að senda fyrirspurn á starf@bodleid.is. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Um Boðleið

Boðleið veitir fyrirtækjum þjónustu á sviði upplýsingatækni, fjarskipta, viðskiptahugbúnaðar og netöryggis. Við vinnum með viðskiptavinum að lausnum sem einfalda daglegan rekstur og styðja við starfsemi þeirra.

Sækja um
Vefverslun
  • Símtæki
  • Fjarfun​darbúnaður
  • Heyrnartól
  • Netbúnaður
Þjónusta og ráðgjöf
  • Tækniþjónusta
  • Hugbúnaðarþjónusta
  • Bókhaldsþjónusta
  • ​Hafa samband
Lausnir
  • Fjarskipti
  • Viðskiptahugbúnaður​​​​
  • Netöryggi
Skoða
  • Um Boðleið​​
  • Viðskiptaskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • ​Peningaþvættisstefna
Fylgdu okkur
  • Facebook
  • LinkedIn
  • Instagram
Þjónustudeild
  • hjalp@bodleid.is
  • +354 535-5200
Opnunartímar

Mánudaga til fimmtudaga
​8:30 - 16:30  
​Föstudaga 
8:30 - 15:00
24.desember
Lokað
31.desember
Lokað
​​​​

Boðleið Þjónusta ehf.

Hlíðasmári 12 
201 Kópavogur 
Kt.
680510-0240
VSK númer  108401

Höfundarréttur © 2026 Boðleið Þjónusta ehf.
Powered by Odoo - #1 Opinn uppspretta rafræn viðskipti