Yealink AP08 er öflugur ProAV DSP hljóðörgjörvi fyrir stór og krefjandi fundar- og ráðstefnurými. AP08 sér um miðlæga hljóðvinnslu og stýringu og tengir saman hljóðnema, hátalara og fundarkerfi í eina sveigjanlega hljóðlausn.
Með 16×16 Dante hljóðrásum, háþróaðri AEC bergmálsvörn, AI-hávaðadeyfingu og matrix hljóðstýringu tryggir AP08 skýrt og náttúrulegt tal. Lausnin hentar sérstaklega vel með Yealink CM50 Dante loftmíkrafónum og CS10-D lofthátölurum og gerir kleift að byggja upp öflugt hljóðkerfi fyrir stór og flókin rými.
Yealink AP08 er kjarninn í faglegri Yealink ProAV hljóðlausn þar sem hágæða hljóð, sveigjanleiki og einföld miðlæg stýring skipta máli.