Yealink MVC S40-C5U-000 er fullbúið fundarkerfi sem er hentugt fyrir lítil til meðalstór fundarherbergi (t.d. 6–12 manns). Kerfið er með samþættuðum mynd- og hljóðlausnum, PC tölvu, viðveruskynjara og snertitöflu á borð. Kerfið er með innbyggt Microsoft Teams Rooms (Windows útgáfa) og býður upp á einfalda uppsetningu, stýringu og háþróaða mynd- og hljóðvinnslu.
Yealink MTower er snjöll fundarmyndavél sem er hönnuð til að sitja í miðju fundaborði og skapa raunverulega „face-to-face“ upplifun í hybrid fundum. Hún notar þrjár 4K myndavélar og innbyggða AI greiningu til að fanga alla þátttakendur og velja sjálfkrafa besta sjónarhornið á þann sem talar . Á sama tíma tryggja 360° hljóðupptaka og beamforming-míkrafónar að allir heyrist skýrt .