Yealink MB65Pro-A02 Meetingboard Pro Teams
Yealink MeetingBoard Pro er önnur útgáfa af hinu vinsæla Meetingboard. Nú með Android 13, bjartari skjá, öflugri myndavélum, betri hljóðgæðum og öflugri örgjörva. Einnig er tækið léttara en fyrri gerð og því auðveldara í meðhöndlun og tilfærslu.
Meetingboard Pro inniheldur allt sem þarf fyrir fundarherbergið, vinnurýmið eða skólastofuna. Tækið er með Android og Windows stýrikerfi og samanstendur af 4K snertiskjá, 3x 4K myndavélum, stereo hátölurum, 16 hljóðnemum og öflugum Octa-core örgjörva sem er sérhannaður fyrir Microsoft Teams. Frábær mynd og hljómgæði skila sér til allra þáttakenda. Hægt er að bæta við auka 4K PTZ myndavél fyrir meiri yfirsýn í stærri rýmum, myndavélin festist efst á snertiskjáinn. Einnig er hægt að bæta við Windows OPS tölvu og skipta þannig milli Teams viðmóts og tölvu eftir hentugleika.
MeetingBoard hentar í öll fundarherbergi og vinnurými. Eina sem þarf að gera er að tengja við net og stinga í samband við rafmagn. Á aðeins örfáum mínútum er hægt að gera klárt fyrir fjarfundinn, teymisvinnuna eða kennsluna. Hægt er að festa tækið á vegg eða bæta við hljólastandi sem auðveldar flutning á milli fundarherbergja eða vinnurýma. Þannig er hægt að ná hámarks nýtni á tækinu og rýmum á vinnustaðnum.
Teymisvinnan færist á hærra stig með Microsoft Whiteboard teikniborðinu sem er innbyggt. Þáttakendur skrifa, teikna og hanna í sameiningu, hvort sem þeir eru á staðnum eða ekki. Tveir geta skrifað eða teiknað í einu, auðveldara er að henda hugmyndum á milli þáttakenda og meira skapandi hugmyndavinna á sér stað.
- Streamline Installation and Deployment
- Triple-eye Camera System (3*50MP)
- AI-Powered View: IntelliFocus, Video Fence
- Pro Sound: 12-meter full duplex (39 feet), noise cancellation, and noise reverberation
- Support native Teams, Zoom, and General Mode
- Dual-Solution (MTRA/MTRW)
- Support whiteboard collaboration
Vörumerki: Yealink |
Undirmerki: Teams |