Skip to Content

odoo Business Show 2025

Áhugi á Odoo fer stigvaxandi með hverju árinu
Þann 14. ágúst komu tæplega 150 manns saman á Edition hóteli niðri við Hörpu á Odoo viðburði. Odoo kemur út með nýja útgáfu á hverju ári og halda  svona viðburð í samvinnu við endursöluaðila sína til að kynna nýjustu útgáfuna hverju sinni. 



Viðburðurinn byrjar á kynningunni sem tekur rúma klukkustund en þar fá gestir að kjósa í gegnum síma sinn í hvaða átt þeir vilja að kynningin fari. Mjög skemmtileg leið til þess að umræðan sé alltaf í þágu meirihluta þeirra sem mættir eru.
Sýningin í ár var einkar glæsileg og ljóst að útgáfa 19 sem kemur út í október mun vera enn eina stökkið fram á við. 



Mesta spennan liggur í nýju gervigreindaraðgerðunum sem spretta upp alls staðar – frá snjallri leit og sjálfvirkri textagerð yfir í sjálfvirka vinnuferla og greiningu gagna. Við fáum líka hraðara og fallegra viðmót, bæði á vef og í appi, með nýjum möguleikum í netverslun, POS og birgðastýringu.
Fjármál, sala og þjónustustjórnun njóta góðs af bættri sjálfvirkni, nýjum greiðslumátum og betri samþættingum. Odoo er nú líka með innbyggt ESG-kerfi (Environmental, Social & Governance) til að hjálpa fyrirtækjum að fylgja alþjóðlegum kröfum.
Stutt sagt: Odoo 19 er hraðara, snjallara og skemmtilegra að nota – og það verður gaman að sjá hvað við getum gert með þessum nýju tólum.


Boðleið sat fyrir svörum í pallborðs-umræðum við mikla ánægju viðskiptavina, heyrðist að svörin hefðu verið áberandi góð og markviss. Viðskiptavinir fóru sáttir og mættu margir aðilar í tenslahitting á LOFTINU á Edition hótelinu þar sem í boði voru léttar veitingar og persónulegt spjall við okkur í Boðleið. 
Heilt yfir frábær dagur og sem er best að draga saman með því að vitna í orð viðskiptavinar okkar í gær:


​ "Odoo kemur sífellt á óvart, það myndu ÖLL fyrirtæki græða á því að fara yfir í Odoo. Það er ekkert annað sem kemst nál​gægt þessu kerfi".


Ef þú vilt vita meira um Odoo, sendu okkur línu Hafa samband